Húfuprjón

€33,00
€33,00

ONLY AVAILABLE IN ICELANDIC

Húfuprjón – 57 uppskriftir á kríli, krakka, konur og karla er litrík og fjölbreytt bók með alls konar húfum ætluð öllum sem hafa áhuga á prjónaskap. Hér eru einfaldar og skýrar uppskriftir að húfum á fólk á öllum aldri, sem og gagnlegar leiðbeiningar, góð ráð og örstutt kennsla í því prjóni og hekli sem kemur fyrir í uppskriftunum.

Guðrún S. Magnúsdóttir hefur áratuga reynslu af prjónaskap, bæði í starfi sínu sem handavinnukennari og í tómstundum. Guðrún hefur áður sent frá sér bókina Sokkaprjón sem notið hefur mikilla vinsælda. Húfuprjón er byggð upp á sama hátt og Sokkaprjón og sem fyrr vann fjölskylda Guðrúnar bókina með henni.

Vaka Helgafell

Útgáfuár: 2012

134 bls.

Höfundur: Guðrún S. Magnúsdóttir

Guðrún er fædd 23. maí 1949 í Reykjavík. Hún lauk námi í Kennnaraskóla Íslands 1970 úr handavinnukennaradeild og lauk svo námi  á almennri kennslu 1973.

Guðrún unnið við kennslu í gegnum tíðina og helstu áhugamál eru hannyrðir, útvera, lestur góðra bóka og svo er Guðrún einnig æðarbóndi á vormánuðum. Guðrún er gift Jóni Sveinssyni lögfæðingi og þau eiga 4 börn og 9 barnabörn.